Leita í fréttum mbl.is

Oh, my Buddha!

Gunnar stakk höfðinu inn um tjaldið fyrir kojunni minni, "Vaknaðu! Það eru bara tíu mínútur þangað til við verðum komnir". Ég leit á úrið mitt, svipti svo gluggatjöldunum frá og leit út um lestargluggann. Sá ekkert nema skógi vaxnar hæðir. "Fíflið þitt, við erum ennþá lengst út í sveit. Við komum ekki inn á stöð fyrr en eftir tvo tíma. Farðu aftur að sofa." hreytti ég út úr mér. "Ég get ekki sofið því mér er svo kalt. Loftkælingin er að drepa mig." svaraði hann. Ég keypti mér svefnfrið með því að múta Gunnari með teppi. Tveimur tímum síðar vorum við svo sannarlega komnir til Chiang Mai.

Chiang Mai er stærsta borg N-Tælands. Hún var um aldir höfuðborg Lanna-ríkisins en það stóð hér um slóðir og skipar háan sess í þjóðarvitund Tælendinga enda margt merkilegt að sjá. Til að mynda þá skilst mér að hér séu flest hof á ferkílómetra í öllu landinu.

Á lestarstöðinni vorum við veiddir um borð í rútu sem skutlaði okkur á hótel eitt þar sem okkur var boðin gisting í skítugri holu á sjöttu hæð í afar óvistlegri blokk. Sem betur fer voru okkur samferða Þjóðverjar sem voru á leiðinni á ágætis gistiheimili og gátu því vísað okkur þangað. Á Somwang Guesthouse tókum við ódýrustu herbergin en í þeim var boðið upp á viftu (fínt, maður fær bara kvef af loftkælingu), kalda sturtu (fínt, maður svitnar bara meira eftir heita sturtu) og rúm úr steypu. Enginn okkar hafði nokkurn tíma séð steypurúm annarsstaðar en á gistiheimili lögreglunnar í Reykjavík. Ef einhver á eftir að ranka við sér í þeim vistarverum þá er trikkið að sofa á bakinu. Ef maður sef á hlið þá lokar maður algjörlega á blóðflæðið í útlimina og vaknar einhverntíma um nóttina, dofinn í helmingi líkamans.

 Fyrstu tvo dagana í Chiang Mai vorum við í raun úrvinda eftir dvölina í Bangkok. Það fór lítið fyrir menningarlegum tilgangi ferðarinnar þar sem dagarnir fóru í lítið annað en svefn á daginn og spil á kvöldin. Á þriðja degi var útivistarráð félagsins farið að ókyrrast. Hrafnkell var orðinn mjög pirraður á letinni svo að hópurinn (nema Jónas, sem að hékk á netkaffi í sjö klukkutíma þann daginn) dreif sig út á næstu ferðaskrifstofu og skráði sig í þriggja daga gönguferð.

Okkur var lofað gönguferð um friðsæl svæði með fáum túristum, að við yrðum eini hópurinn á stígnum og að ekki yrðu fleiri en 12 í hópnum. Þegar við mættum á staðinn kom í ljós að það voru litlar búðir sem að seldu kók og bjór með stuttu millibili á stígnum, við fylgdum öðrum hópi hluta leiðarinnar og það voru 13 manns í hópnum. Silence is golden, words are cheap.

 Hópurinn var ágætur en hann var skipaður fulltrúum fjögurra þjóða. Fyrsta ber að nefna okkur sjálfa, fjóra unga skjaldbera Íslands. Þá næst voru Hollendingarnir Nikolas og Katrin (borið fram eins og með hárbolta í kokinu) en þau voru eldra par sem ákvað að njóta þess í Tælandi að ungarnir væru flognir ú hreiðrinu. Það runnu á okkur tvær grímur þegar Frakkarnir komu í bílinn enda fimm manna fjölskylda þar á ferð. Við gerðum ráð fyrir að Philippe og Isabella ásamt tvíburunum og Lucian litla, sem var 5 og 1/2 árs (Jónasi tókst að skilja það sem 9 og 1/2 árs), myndu tefja hópinn og dragast aftur úr. (Þess má geta að Philippe og Isabelle reka veitingastaðinn D´Steinmuehl í Strasbourg. Boðið upp á hefðbundna rétti frá Alsace héraði. Sími (+33) 03 88 81 88 91.) Síðasta ber svo að nefna Ástralana tvo, bókarann Kieran og námumælingamaðurinn Wayne. Þeir tveir voru heimshornaflakkarar (90 lönd í bankanum) á síðustu metrunum aftur heim en þeir voru að ljúka árstúr. Til að koma í veg fyrir að það kæmist upp um okkur þegar við töluðum illa um félaga okkar þá notuðum við ekki fremur alþjóðleg orð eins og Holland eða Ástralía. Hollendinga kölluðum við appelsínugula, Ástrali Suðurálfumenn eða bara Sunnlendinga og Frakkana nefndum við froska. Nema hvað.

Gangan sjálf var frekar ómerkileg. Labb um yfirgefna hrísgrjónaakra, upp og niður hæðir vaxnar þéttum skógi og síðan stoppað í þorpum sem byggðu lífsafkomu sína á að selja túristum drykki og minjagripi. Við fengum samt nóg að éta en við matarborðið sýndum við mikinn metnað í að borða sem mest og klára af öllum diskum. Undir lokin var það orðin skemmtun hinna í hópnum að bera í okkur alla afganga og sjá hversu lengi við entumst. Á kvöldin sat hópurinn við varðeld og spjallaði saman um heima og geima. Jónas tók ástfóstri við Ástralana og kjaftaði á honum hver tuska alla ferðina.

Ferðin náði þó tveimur hápunktum sem gerðu hana ómaksins virði. Á öðrum degi ferðarinnar fengum við far á fílsbaki um klukkustundar leið. Hrafnkell og Jónas gripu að sjálfsögðu tækifærið til að monta sig af ævintýrum sínum í Nepal og hvað þeir hefðu séð þetta allt og meira áður. Við hin gátum hinsvegar dáðst að þessum tignarlegu skepnum enda fæst verið í návígi við fíl áður og nutum röltsins í botn. Langmesta skemmtunin kom þó í lok ferðarinnar en þá fórum við á bambusfleka niður á. Við fórum allir fjórir á einn fleka ásamt leiðsögumanni. Það er skemmst frá því að segja að við vorum langseinastir niður ána og entumst þurrir í 6 sekúndur. í lengra máli þá vorum við allir svo þungir að flekinn maraði hálfur í kafi, við strönduðum á öllum steinum, veltum flekanum aftur og á ný (oftast viljandi), rákum stjórnlaust yfir flúðir og skullum á klettum þannig að menn köstuðust út í iðuna og urðu að berjast við að halda sér á floti. Skipstjórinn okkar hélt ítrekað um höfuð sér og þegar illa stefndi hrópaði hann, "Oh, my Buddha!". Fyrst enginn gat sér um þurrt höfuð strokið og flekinn hélt einungis saman á þrjóskunni  var ljóst að við myndum reyna að draga alla þá sem við sigldum fram á út í ána. Nóg var af flekunum í ánni og þegar við náðum í skottið á fleka renndum við upp að honum og stukkum svo út í með herópi.  Þegar við höfðum vætt alla sem fyrir voru brunuðum við niður ána með sigurópi: renn-denn-denn!!! Allir tóku þátt í gusuganginum því asíubúar er vitlausir í góðan vatnsslag.

Þegar við komum aftur til Chiang Mai fengum við ný herbergi á Somwang, í þetta skiptið með rúmum fyrir löghlýðna borgara. Þá um kvöldið höfðum við mælt okkur mót við Ástralana til að horfa á Liverpool-ManU. Kieran og Jónas horfðu sorgmæddir á sína menn lúta í gras og ákváðu að drekkja úrslitunum. Við hinir tókum þátt í erfidrykkjunni sem átti eftir að berast út um víðan völl. Við brunuðum á tuk-tukum út um allan bæ þar til við rákumst á nokkra Bandaríkjamenn sem að við neyddum til að taka þátt í alls kyns íslenskum hefðum og athöfnum sem við fundum upp á staðnum, að sjálfsögðu. Að lokum hittum við hóp af Dönum inni á frönskum bar og sátum sem fastast á meðan eigandinn, akfeitur Frakki, reyndi að henda okkur út enda löngu komið yfir löglegan opnunartíma.

Daginn eftir voru menn allharkalega timbraðir og Jónas sá þunnasti síðan smjörpappír var fundinn upp. í tilefni af því var haldið inn í hjarta vestrænnar menningar, McDonalds. Til að koma skikki á magann og lyfta lóðum af huganum dugði ekkert minna en 19 ostborgarar, 1 tvöfaldur Big Mac, 6 stór glös af Kóka-kóla, 3 McFlurry og einn lítill franskar. Starfsfólk átti erfitt með að halda andliti. Áralangur draumur okkar hafði loksins ræst.

Að lokum má nefna það að við erum núna að bíða eftir að rútan okkar til Bangkok leggi af stað. Við ætlum okkur ekki að dvelja neitt í Bangkok heldur komast áfram þaðan til eyjarinnar Ko Chang, sem er suðaustan við Bangkok, rétt hjá landamærum Kambódíu. Ef allt gengur vel (við rennum blint í sjóinn, því við erum svo miklar pæjur) þá verðum við komnir þangað annað kvöld.

 Þangað til,

Salut!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hrafnkell taladi einhvern tima um thad ad vera thraell sidunnar. Daginn sem eg eyddi 7 klukkustundum til ad hlada inn myndum var eg thad svo sannarlega. 17 myndir a 7 klukkustundum gefa agaetis mynd um hugsykina sem tok ad berast um huga minn allan thann tima. Jesus Christ hvad netid getur verid mikil skitaklebri.

Jonas Asmundsson (IP-tala skráð) 5.3.2007 kl. 08:57

2 Smámynd: Þórður Gunnarsson

Þetta er náttúrulega alger ofurferð. Ég er hérna að skrifa ritgerð um gengissveiflur ISK og íslenska hagstjórn síðustu áratugi, þannig að þið eruð óneitanlega í betri stöðu en ég. Lengi lifi Fallið!

 Ps. dauðafærin vinna ekki leiki, en það gerir John O'Shea.

Þórður Gunnarsson, 5.3.2007 kl. 13:50

3 identicon

Góð færsla og flottar myndir, keep it up!

Ps. merkilegt samt að Keli tapar ALLTAF í steinn, blað og skæri !

Rútur Örn (IP-tala skráð) 5.3.2007 kl. 18:02

4 identicon

Ég var einu sinni á 2 vikna keppnisferðalagi um Evrópu með bresku körfuboltaliði. Þeir vildu borða MacDonalds í öll mál....og þá meina ég í ÖLL mál! Eftir 14 daga af ostborgurum, frönskum og Flurry var ég alveg stjarfur af næringarskorti. Fékk hroll þegar ég las að þið hefðuð pantað 19 ostborgara og allt hitt stöffið! Góða ferð strákar. Hlakka til að lesa fleiri færslur um ævintýrin ykkar. ;) 

Grétar (IP-tala skráð) 5.3.2007 kl. 19:58

5 identicon

Mmm. Þetta hljómar allt saman mjög vel. Sérstaklega McDonalds keppnin. Er þetta ykkar framlag í ostborgarakeppnina?

Teitur (IP-tala skráð) 6.3.2007 kl. 09:20

6 identicon

Þetta er svakaleg ferð, 5 1/2 eða 9 1/2 árs hvað var þetta eiginlega stórt barn ?  Klárlega meira gaman hjá ykkur en mér, ég sit í tíma og hlusta á Ingibjörgu Harðar tala um pýridoxin og fyrirtíðaspennu Spennandi 

Halldóra Kristín 

Halldóra Kristín (IP-tala skráð) 6.3.2007 kl. 10:08

7 identicon

Þið eruð nettir, drengir.  Þið eruð að sýna fram á að þetta er eitthvað sem allir verða að gera. Evrópa er greinilega algjör krumputúr miðað við ykkar hvað varðar framandiheit. Ætli maður skelli sér ekki líka þegar maður er búinn með bissan.

 Jónas, ég skal lofa Liverpool sigri fyrir þig í kvöld.

kv. Villi Alvar

Villi Alvar (IP-tala skráð) 6.3.2007 kl. 11:01

8 Smámynd: Hrafnkell Hjörleifsson

Thess ma til gamans geta ad eftir McDonalds ferdina (sem er vissulega framlag i keppnina, endilega latid vita ef thid etid fleirri heima) tha var Jonas nokkud viss um ad hann vaeri ad deyja, leid naestum yfir hann og kvartadi undan stifludu velinda. Allt bjargast tho ad lokum og vid endudum a ad spara okkur peninga, odyr ein maltid a dag.
Ja og med drenginn tha var hann ekkert stor, hluti mannkynsins er einfaldlega thannig gerdur ad thegar syna a 5 1/2 putta tha birtast allir puttarnir nema halfur vinstri litlifingur.

Hrafnkell Hjörleifsson, 6.3.2007 kl. 13:18

9 Smámynd: Jonas Asmundsson

Merkilegt hvad McDonalds er haettulegur stadur. Er ekki fra thvi ad vid hofum (eg) tekid thad tha merkilegu afstodu ad eta ekki mikid oftar tharna. Og svona a medan eg er ad thvi ad haetta ad gera hluti ad tha verdur thetta mitt sidasta skipti sem eg horfi a Liverpool spila vid ManUtd a Anfield thar sem i OLL thau skipti sem eg hef sed thessi tvo lid maetast a thessum merka leikvangi ad tha tapar Liverpool 0-1. Bommer i meira lagi. Og thegar madur er nybuinn ad rifja upp merka sogu klubbsins med maetum Liverpool-ahanganda (Kieran), ad tha verda blendnar tilfinningar sem leida til illra hluta. Ae, aetli madur kupli sig ekki adeins ut ur fotboltatilfinningunum her eftir. Madur er ju a einni fallegustu strond heims og saenska stelpan sem bloggar vid hlidina a mer likist of mikid Sunnevu Torp til ad manni geti lidid illa yfir lidnum hlutum.

Jonas Asmundsson, 6.3.2007 kl. 13:26

10 Smámynd: Alvy Singer

Greinilegt að drengirnir eru komnir til Thailands, búið að vera saklausar ferðamyndir en um leið og röðin var kominn að Thailandi, þá koma bara djamm-myndir! Góð myndin af Kela, þarsem hann léttir af sér.

Kv. Baldur 

Alvy Singer, 6.3.2007 kl. 14:28

11 identicon

Ég og Lilja pöntuðum flugið út í gærkvöldi! Spennan magnast hérna í Breiðholtinu! Hlökkum til að sjá ykkur í sólinni.

Kv. Guðný

Guðný (IP-tala skráð) 7.3.2007 kl. 10:13

12 identicon

Gunni. Beastie boys voru að bætast við á hróaskeldulistan. spurning hvort það verði sabotage partý fyrir tónleikana ? :P

klassikó

 rútur

Rútur Örn (IP-tala skráð) 8.3.2007 kl. 17:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundar

Ferðafélagið fall
Ferðafélagið fall
Ferðafélagið Fall er eins og nafnið gefur til kynna félagsskapur sem hefur þá lífsskoðun að fall sé fararheill. Því stendur félagið núna í einhverju glórulausu heimshornaflakki. Hér birtast tíðindi úr þeirri útferð.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband